Jæja ágæta fólk.. Komið hefur í ljós samkv.
óáreiðanlegri könnun að ég er lélegur bloggari...
Ég er ekki fyrr búinn að opna síðu fyrr en að ég er
farinn að vanrækja það að skrifa. En hér koma nokkrar línur um það
sem hefur drifið á daga okkar frábæra þríeykis....
Síðasta vika var nokkuð góð enda mikið um að vera í okkar
litla heimi. Við erum að komast nær þessari fullkomnu rútinu. En
takmarkið er þetta:
07:00 – Vakna og þrífa & klæða okkur. Jafnvel að
kíkja aðeins á Cartoon Network svona á meðan pabbin blandar sér
protein shake í morgunmat...
07:40 - Labbað af stað í leikskóla.
08:00 - Mættur á hlaupabrettið í ræktinni.
08:40 - Lagt af stað í vinnu.
09:00 - Vinna.
16:00 - Vinna búin heim að ná í krakkalinga
17:00 - Komin heim... frjáls tími... út að leika, ræktin
eða farið í búðina.
19:00 - Matur & háttatími. 20:00 - Farið að
sofa.
20:30 - Frjáls pabba tími. Heimsóknir, kaffihúsið, lestur
eða þáttagláp.
24:00 Farið að sofa
Veruleikinn hingað til er hinsvegar... í 60%
tilvika:
08:30 - Vaknað, krakkarnir búnir að rústa stofunni,
eldhúsinu og herberginu sínu... 08:40 - Keyrt í
leikskólann.
09:10 - Of seinn í vinnu...
16:30 - lagt af stað úr vinnu. 16:50 - Náð í
krakkana...
17:00 - Þrífa eftir krakkana frá því um
morguninn.
19:00 - Matur & háttatími.
20:30 - Farið að sofa
21:00 - Frjáls pabba tími. Heimsóknir, kaffihúsið, lestur
eða þáttagláp.
02:30 - Farið að sofa...
Jæja eftir að hafa sett þetta á blað að þá er mun
auðveldara að sjá hver ástæðan er fyrir því að ég er að vakna svona
seint.. Hmmm..
Ætla fara fyrr að sofa í kvöld....haha
Nei annars erum við nokkuð vel stemmd. Arent var reyndar
með hita síðustu 2 sólarhringa og það er einhver skítur í kverkunum
á okkur öllum...Magnað hvað það getur komið mikið slím í litlum
nebbum...
Þetta verður ekki lengra að sinni..
Bless bless...johnny